03.05.1932
Efri deild: 66. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2296 í B-deild Alþingistíðinda. (2624)

88. mál, einkasala á tóbaki

Forseti (GÓ):

Ég verð að fallast á það, að ekki sé heppilegt að ræða þetta mál í fjarveru hæstv. fjmrh. Ég bjóst við, er ég tók það til umr., að hann gæti komið hingað í hv. d. en nú frétti ég, að svo getur ekki orðið. Tek ég því málið hér með út af dagskrá.