20.02.1932
Neðri deild: 6. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (266)

3. mál, landsreikningar 1930

Magnús Guðmundsson:

Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þessa upplýsingu. En auðvitað er ekki hægt að útbýta LR. strax þegar svörin koma frá hæstv. stj., því þá eiga yfirskoðunarmennirnir eftir að athuga þau og gera till. út af þeim. Og einn yfirskoðunarmannanna er, eins og hæstv. ráðh. veit, í fjarlægri sveit.