04.06.1932
Neðri deild: 93. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2364 í B-deild Alþingistíðinda. (2724)

258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:

Ef hv. 3. þm. Reykv. telur, að hið sama felist í varatill. sinni og í till. minni, þá held ég, að ekki sé ýkjamikil ástæða fyrir hann að vera að amast við henni, þar sem hann hefir líka sömu aðstöðu til þess að koma till. sinni í gegn á næsta þingi eins og nú.