04.06.1932
Efri deild: 95. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2368 í B-deild Alþingistíðinda. (2749)

824. mál, tekju- og eignarskattsauki

Magnús Torfason:

Ég lýsi yfir því, að ég er með brtt. hv. 2. landsk., en vil samt leyfa mér að bera fram brtt. við hana, þess efnis, að í stað 3500 kr. komi 3000 kr. þykist ég vita, að meiri von sé til, að hún verði samþ. með þeirri breytingu.