17.03.1932
Neðri deild: 31. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í C-deild Alþingistíðinda. (2887)
87. mál, innflutningur á kartöflum o. fl.
Sveinn Ólafsson:
Við 1. umr. þessa máls beindi ég þeirri ósk til hv. landbn., að hún tæki upp minni háttar breyt. við frv. M. a. óskaði ég þess þá, að fyrir orðið kartöflur kæmi hvarvetna orðið jarðepli. En þetta hefir farizt fyrir. Þrátt fyrir það er jarðeplanafnið komið inn í frv. með brtt. við 4. gr., svo að nú standa í frv. bæði nöfnin, og finnst mér fara illa á því. Einkanlega felli ég mig illa við niðurlagsorð 3. gr., og það orkar mjög tvímælis, að þar sé rétt notuð eignarfallsmyndin kartaflna. Auk þess er varla hægt að bera fram þetta orðskrípi. Út af þessu kemur mér því í hug að bera fram skrifl. brtt. um það, að hvarvetna í frv. verði sett jarðepli í staðinn fyrir kartöflur og í viðeigandi falli. (EA: Og tölu líka, er það ekki?). Fallið mun segja til um tölu.
Ég ætla ekki að tala um þetta frekar og ekki heldur um aðrar þær brtt., sem fyrir liggja, en skal þó geta þess um brtt. á þskj. 197, að ég tel það fyrirkomulag, sem þar er bent á, betra en það, sem í frv. er. Ég tel réttara að tolla innflutt jarðepli en að lögbanna innflutninginn, en atkvgr. sker bráðlega úr um það, hvernig um hana fer. Ég vil svo leyfa mér að afhenda hæstv. forseta skrifl. brtt. og vænti góðra undirtekta um hana.