19.03.1932
Neðri deild: 33. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í C-deild Alþingistíðinda. (2925)

87. mál, innflutningur á kartöflum o. fl.

Frsm. (Pétur Ottesen):

Mér kemur það kynlega fyrir sjónir, að hæstv. forseti skuli leyfa þdm. að fara af fundi og fresta svo atkvgr. um þetta mál. Ég hefði, eins og sumir aðrir þdm., þurft að vera farinn héðan af fundi, en vildi þó bíða eftir þessum málalokum, og er því mjög sárt um, að atkvgr. verði frestað.