15.03.1932
Neðri deild: 29. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í C-deild Alþingistíðinda. (2939)

128. mál, verðtollur af tóbaksvörum

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég mótmæli aftur öllu skvaldri um svik af hálfu Framsóknar. Ég hefi aldrei heyrt, að Framsóknarfl. hafi lofað eða skuldbundið sig til að gera engar breyt. á tóbakstolli. Þess vegna getur hér ekki verið um nein svik að ræða. En þó að arðurinn af tóbakseinkasölunni kynni eitthvað að minnka, þá hlýtur það að koma jafnt niður á báðum aðiljum, bændum og verkamönnum, þannig að hvorugur hefir upp á annan að klaga.