26.04.1932
Neðri deild: 60. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í C-deild Alþingistíðinda. (3094)
89. mál, ungmennaskóli með skylduvinnu nemenda
Frsm. meiri hl. (Sveinbjörn Högnason):
Ég vildi aðeins svara hæstv. fjmrh. nokkrum orðum. Hann vildi bjóða okkur Rangæingum einhver kostakjör við Laugarvatnsskóla og virtist halda, að með því væri þetta mál leyst. En þetta frv. er nú ekki miðað eingöngu við Rangæinga.
Hæstv. ráðh. sagði, að við mundum geta fengið forgangsrétt að Laugarvatnsskóla, án þess að það yrði öðrum að meini, því að hinir skólarnir væru ekki fullskipaðir. En ég vil nú spyrja: Ef þessir nýtízku skólar, sem reistir hafa verið og munu vera einhverjir þeir beztu lýðskólar, sem yfirleitt eru til, eru ekki fullskipaðir, þrátt fyrir það að þeir tíma ekki nema lítið brot af æskulýð landsins, er þá ekki ástæða til þess að halda, að skipulagið, sem þeir starfa eftir, sé ekki sem bezt? Væri ekki ástæða til að reyna að leita fyrir sér, hvort ekki er hægt að finna annað skipulag, sem betra er og fyllti skólana? Við álítum, að það skipulag, sem hér er um að ræða, mundi opna leið til þess, að skólarnir geti náð til allra.