10.05.1932
Efri deild: 71. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (3215)

636. mál, strandferðir

Jón Jónsson:

Það er náttúrlega gott að eiga von á því að fá till. um varðskipin. Það er líka stór liður, sem vert er að athuga. Hv. þm. segist ekki hafa tekið þessa liði. Ég hefi ekki getað sannfærzt um það enn, því þetta er vitanlega heildaruppgerð, en það virðist samt vera svo, að þessir liðir séu teknir með. En hvað sem því líður, þá er þessu betur borgið með því að láta stj. athuga það, því hún þarf að taka ýmsa fleiri hluti í þessu sambandi til athugunar.