25.05.1932
Neðri deild: 83. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í C-deild Alþingistíðinda. (3374)
226. mál, jarðræktarlög
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):
Ég tel óþarfa að hafa langar umr. um þetta mál. Það er þrautrætt og getur því ekki komið neitt nýtt fram, þó farið væri að ræða það nú. Leyfi ég mér því aðeins að óska þess, að það fái að ganga gegnum hv. d.