17.05.1932
Efri deild: 76. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í C-deild Alþingistíðinda. (3526)
581. mál, veitingasala, gistihúsahald o.fl.
Jón Þorláksson:
Ég skal fúslega viðurkenna góðan tilgang þessa frv., að því leyti sem því er ætlað að styðja atvinnu íslenzkra gistihúsa. En satt að segja finnst mér það samt ekki til þess fallið að verða að lögum.
Hv. frsm, gerði ekki alveg rétt grein fyrir efni frv. Hann taldi það vera til að fyrirgirða, að skip, sem kæmu frá útlöndum, og þá aðallega til Reykjavíkur, gætu vistað um borð farþega meðan þau stæðu við. Þetta getur hitt fleiri en slík skip. Það eru mörg skip, sem fara áætlunarferðir til annara staða á landinu og snúa þar við, og ég held, að það væri óheppilegt fyrir alla aðila, ef þessi lög yrðu sett og þeim framfylgt. Nú er það t. d. altítt, að hópar fólks úr Reykjavík taka sér far með millilandaskipum til Akureyrar, dvelja þar meðan skipið stendur við og búa þar um borð. Ég veit ekki, hvort gistihúsum á Akureyri væri nokkur greiði með því gerður, að þvinga þetta fólk til að búa í landi þær nætur, eina eða tvær, sem viðdvölin varir, Það kemur fyrir, að þessi skip fara til Húsavíkur, og það getur átt sér stað, að þau dveldu þar yfir nótt. Þar yrði því líka að reka farþegana í land.
Ég veit, að það hefir vakið ofurlítinn kurr, að annað af þeim erlendu skipafélögum, er hingað sigla, Sameinaða félagið, hefir boðið enskum ferðamönnum, er hingað ætla að ferðast, dvöl á skipum sínum meðan þau standa hér við. En ég held, að það verði enginn vinningur fyrir landið að banda hendinni við slíku með löggjöf, sem mun vera alveg óvenjuleg með siðuðum þjóðum. Þeir menn, er slíkar ferðir fara, hafa stuttan tíma og kæra sig ekki um að eyða nema takmörkuðu fé. Með því að semja við skipafélagið geta þeir vitað fyrirfram nákvæmlega, hverju þeir þurfa að eyða. Þótt það sé erlent félag, sem nú hefir boðið upp á þetta, þá getur það líka hitt Eimskipafélagið, því vel má vera, að það sjái sér hag í því að bjóða upp á þessa kosti líka.
Ég álít, það löggjöf sem þessi sé fram komin af of litlu tilefni og hinsvegar talsvert óvenjulegt inngrip í frjálsæði manna. Ég get því ekki greitt frv. atkv.