19.02.1932
Neðri deild: 5. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í C-deild Alþingistíðinda. (3618)

15. mál, fimmtardómur

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Ég vil aðeins leiðrétta misskilning, sem kom fram í ræðu hv. þm. N.-Ísf. Hann sagði, að það hefði frétzt vestur, að með frv. þessu væri verið að útiloka núv. dómara frá hæstarétti. Þetta er alls ekki rétt, því að þeim eru beinlínis tryggð embættin, og ég vænti, að hv. þm. sannfærist um, að svo er, ef hann kynnir sér frv., og jafnframt um, að frétt sú, er honum barst vestur um þetta, hafi ekki verið rétt.