16.03.1932
Neðri deild: 30. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 693 í C-deild Alþingistíðinda. (3642)

15. mál, fimmtardómur

Ólafur Thors:

Ef hæstv. forseti dregur dagkaup af þm. fyrir að greiða ekki atkv. að þessu sinni, vildi ég mælast til, að hann drægi a. m. k. hálft kaupið af hv. þm. Ísaf. fyrir hans o-já. Yfirleitt teldi ég nóg, að hann fengi helming af þingkaupinu.