31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í C-deild Alþingistíðinda. (3697)

15. mál, fimmtardómur

Jón Þorláksson:

Ég vil gera tilraun til þess að enda þessar umr. Mun ég því afhenda riturum deildarinnar aths., sem ég óska færða inn gerðabókina, og mér finnst, að taka megi ákvörðun um það á næsta fundi, hvort hún megi komast inn á gerðabókina eða ekki.