31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 719 í C-deild Alþingistíðinda. (3698)
15. mál, fimmtardómur
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Hv. 1. þm. Reykv. tók það fram, að sú fræga bókun, sem minnzt var á, hefði ekki átt sér stað í þessari d. Ég tók það heldur ekkert fram, hvorri deildinni hún hefði verið. Hv. þm. veit líka vel, hverju þetta fordæmi var fólgið. Á þinginu 1921 fór hv. l. landsk., sem þá var þm. Reykv., í gerðabók Nd. og skrifaði hana klausu, sem honum þótti við eiga. Hv. núv. 1. þm. Revkv., sem þá, hafði aðra skoðun á ýmsum málum og þ. á m. á því, hvað bóka ætti gerðabækur þingsins, heldur en núv. samherji hans, hv. l. landsk., gerði þá karlmannlega tilraun til þess að eyðileggja þessa bókun fyrir núv. félaga sínum. Merki þessarar karlmennsku hv. þm. ber gerðabók Nd. frá þeim tíma enn hann dag í dag. Þessu fræga fordæmi lauk þannig, að báðar söguhetjurnar voru álitnar nálega óþinghæfar eftir þetta.