31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í D-deild Alþingistíðinda. (3779)
251. mál, niðurfærsla á útgjöldum ríkisins
Flm. (Jón Þorláksson):
Ég get látið þann ágreining, sem er á milli mín og hæstv. fjmrh. viðvíkjandi aðstöðu fjvn. til að leysa þau verkefni af höndum, sem hér um ræðir, liggja á milli hluta að mestu leyti, þar sem hæstv. ráðh. hefir lýst yfir því, að hann muni geta fallizt á, að skipuð verði slík n., sem hér er farið fram á með þessari till., en vil aðeins endurtaka það, að ef borið er saman t. d. fjárlögin fyrir árið 1931 og landsreikningurinn fyrir sama ár, sem nú liggur fyrir hér um bil fullprentaður, mun þar mega sjá allskýra mynd af því, hve mikið af útgjöldum ríkisins liggur algerlega fyrir utan áhrifavald fjvn. þingsins. Gæti ég vísað í ýmislegt fleira um þetta, en þykist ekki þurfa þess, eins og málið horfir nú við.
Út af spurningum hæstv. fjmrh. get ég lýst yfir því f. h. Sjálfstæðisfl., að flokkurinn er þess albúinn og fús til að hafa aðeins einn mann á þeim lista, sem við munum afhenda hæstv. forseta við væntanlegar hlutfallskosningar í þessa n., en að því er hina spurninguna snertir, hvort við munum geta fallizt á, að sú n., sem kosin verður hér í deildinni, starfi áfram milli þinga á kostnað ríkissjóðs, ef till. kemur fram í þá átt, þá get ég ekki svarað eins ákveðið um það. Sjálfstæðisfl. hér í d. er ekki við því búinn að velja mann í n. með það fyrir augum, að sá maður vinni áfram í n. milli þinga. Þá hefir og verið borin fram samskonar till. í Nd. um að skipa þar aðra slíka n., og höfum við hugsað okkur, sem að þessum till. stöndum, að n. ynnu saman, eins og þingsköp heimila, og að nefndarmenn skiptu jafnvel með sér verkum, svo að raunverulegur árangur gæti orðið af störfum n. fyrir þinglok. Var það alvarleg meining okkar með því að fara á flot með þessa till. í upphafi, að mikið gagn mætti af störfum slíkrar n. leiða fyrir þinglausnir, og þó að tíminn sé nú orðinn styttri en ella hefði orðið, ef till. hefði ekki með forsetavaldi verið meinað um afgreiðslu í Sþ., er það skoðun okkar, að enn geti þó slík n. afkastað allmiklu í þessum efnum, sem að gagni mætti koma, og því höfum við borið þessar till. fram hvor í þeirri deild, sem hann á sæti í. Get ég eins búizt við því, að svo kunni að fara, ef till. kæmi fram um það frá stj., að slík n. starfaði áfram milli þinga, að Sjálfstæðisfl. óskaði eftir því, að sá maðurinn, sem tæki sæti í n. í Nd., sæti í n. áfram milli þinga. Get ég ekki annað sagt um þetta, nema hvað ég get bætt því við, að ef ekki kemur eitthvað óvænt fyrir, sem geri Sjálfstæðisfl. ókleift að vinna með núv. stj. milli þinga, sem ég vona, að ekki verði, mun flokkurinn vafalaust taka vel í slíka málaleitan, ef n. hefir ekki orðið svo ágengt í starfi sínu fyrir þinglok, að fullnægjandi sé.