17.02.1932
Neðri deild: 3. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (382)

5. mál, verðtollur

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég gef hér enga yfirlýsingu um það, hvort stj. muni fremur hallast að till. meiri eða minni hl. skattamálan., né heldur um það, hver frv. stj. muni hera fram í þessum efnum. Geymi ég mér það, þar til ég tala frekar við fjhn. en nú er orðið. Ég vil þó vara hv. þm. Seyðf. við að gera sér of glæstar vonir um, að stj. hafi nú fallizt á hans mál í þessum efnum, eða að frv. hans, sem áður áttu litlu fylgi að fagna, verði nú gleypt í heilu lagi.