22.02.1932
Neðri deild: 7. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í C-deild Alþingistíðinda. (3872)

16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Mál þetta hefir verið rætt ýtarlega áður í þinginu, bæði hér í þessari deild og eins í Ed., svo að ég sé ekki ástæðu til að fara að rekja efni þess að svo stöddu, en vil leyfa mér að leggja til, að frv. verði vísað til sjútvn. að umr. lokinni.