22.02.1932
Neðri deild: 7. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í C-deild Alþingistíðinda. (3875)

16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Út af fyrirspurn hv. 2. þm. Skagf. vil ég aðeins taka það fram, að gerðar hafa verið lítilfjörlegar tilraunir um það, hve langt væri hægt að komast í þessu efni eftir þeim leiðum, sem þessi sami hv. þm. hefir mælt með hingað til, og hafa þær tilraunir sýnt það, að tilgangur þessa frv. næst ekki með núgildandi löggjöf.