01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 926 í C-deild Alþingistíðinda. (3893)
16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa
Frsm. minni hl. (Jóhann Jósefsson):
Það er vitanlegt, að það er ekki hæstv. forseta neitt sérstaklega að kenna, hversu tafið hefir verið fyrir þessari till. á þingi. En þar sem hann hefir lofað að taka 12. málið á dagskrá, um loftskeytatæki á botnvörpuskipum, þá held ég, að það dyljist engum, að hitt málið er meira áríðandi. Og ég vænti þess, að það verði látið koma í réttri röð, eigi síður fyrir það, hversu á því liggur. En vitaskuld verð ég að beygja mig fyrir vilja hæstv. forseta í þessu efni, þó að ég sé ekki ánægður með þessa ráðstöfun.