01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í C-deild Alþingistíðinda. (3900)

16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa

1) HJ:

Ég sé enga ástæðu til þess, að d. fari að breyta þeirri ákvörðun, sem hæstv. forseti hefir tekið, að taka þetta mál á dagskrá. Annars skal ég játa það, að ég hefi enga sérstaka löngun til þess, að þetta mál verði tekið á undan öðrum málum, sem á dagskránni eru. En úr því að hæstv. forseti hefir ákveðið það, sé ég mér ekki fært annað en að samþ. það, og segi því já.