01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í C-deild Alþingistíðinda. (3901)

16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa

2) HG:

Ég hefi stundum orðið fyrir því, að hæstv. forseti hefir neitað mér um nafnakall. Ég mun greiða atkv. með því, að málið verði tekið fyrir, í trausti þess, að hæstv. forseti haldi þeirri reglu, sem hann hefir tekið upp; að vísa því til d., ef hann álítur orka tvímælis, hvort eigi að veita nafnakall eða ekki.