01.03.1932
Neðri deild: 17. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1002 í C-deild Alþingistíðinda. (4013)
51. mál, Menningarsjóður
Flm. (Magnús Guðmundsson):
Ég geng þess auðvitað ekki dulinn. fremur en hv. þm. Dal., að þeir menn, sem góðs njóta af tekjum þessa sjóðs, hafa nú minna upp úr sér en ella, vegna árferðisins. En það verða fleiri en þeir fyrir barðinu á árferðinu. Heldur hv. þm. Dal. e. t. v. ekki, að bændur landsins verði fyrir barðinu á árferðinu líka? É hygg a. m. k., að þeir verði ekki betur úti en aðrir, og er enda svo um alla atvinnuvegi landsins, að þeir eru nú reknir með halla, meiri eða minni. Þetta mál má því að nokkru leyti vera prófsteinn á þingið um það, hvernig það litur á fjárhagsástandið, sem nú ríkir í landinu, hæst sem lægst. Ég lít svo á, að þegar svo er komið, að lítið eða ekki verður hægt að vinna umfram það, sem lögákveðið er, liggi fátt nær en að draga úr útgjöldunum á þeim sviðum, þar sem þetta er mögulegt. Það má að vísu e. t. v. segja. að hér sé óheppilega borðið niður, en ætli hið sama mundi ekki kveða við um flestar, ef ekki allar niðurskurðartill? Einhversstaðar verður a. m. k. að bera niður, ef hér á ekki allt að fara í kaldakol á næstunni.