10.05.1932
Sameinað þing: 8. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í D-deild Alþingistíðinda. (4113)

223. mál, viðskiptasamningar við erlend ríki

Forseti (EÁrna):

Mér hefir borizt svo hljóðandi skrifl. brtt. frá hv. þm. Mýr.:

Tillgr. orðist svo: Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að leita samninga, í samráði við utanríkismálanefnd, við erlend ríki um sölu íslenzkra afurða og ívilnanir um tolltekjur“.

Þessi brtt. er of seint fram komin og þar að auki skrifleg, og þarf því tvöföld afbrigði til að hún megi komast hér að.