02.05.1932
Neðri deild: 65. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í D-deild Alþingistíðinda. (4139)

187. mál, björgunarstarf og eftirlit með fiskibátum

Pétur Ottesen:

Ég vil skjóta því til sjútvn., sem fær mál þetta til meðferðar, að hún athugi jafnframt till. þessari björgunarstarfsemi og eftirlit með fiskibátum í Faxaflóa. Þörfin er þar ekki síður brýn en annarsstaðar, og ef til vill brýnust. Hátt á annað hundrað báta stundar þar sjó á hættulegasta tíma árs. Ég treysti því, að sjútvn. gefi því máli verðskuldaðan gáum.