10.03.1932
Neðri deild: 25. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1145 í C-deild Alþingistíðinda. (4145)

118. mál, húsnæði í Reykjavík

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Ég vil aðeins svara þessum útúrsnúningi hv. flm. Ég sagðist ekki þekkja dæmi þess, að hér væri okurhúsaleiga, en gerði þó ráð fyrir, að svo kynni að vera sumstaðar. En það er auðvitað allt annað en það, sem hv. flm. lagði mér í munn.