15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (467)

7. mál, lax- og silungsveiði

Bjarni Ásgeirsson:

Hæstv. forseti talaði um það, að landbn. ætti ekki að þurfa langan tíma til að glöggva sig á till. Hún kom nú á fund í morgun, og var þá till. ekki komin fram. Hefir hún því ekki getað átt tal við hv. flm. um hana. Vildi ég þess vegna æskja þess, að n. gæfist kostur á að athuga þessa till. með hv. flm., áður en hún kemur til atkv.