15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (468)

7. mál, lax- og silungsveiði

Forseti (JörB):

Ég vil fúslega verða við tilmælum hv. þdm. um það, að veita frest til íhugunar málsins, en nokkrum takmörkunum verður þó slíkur dráttur að vera haður. Hv. þm. Mýr. gat þess, að till. hv. flm. hafi ekki legið fyrir í morgun, þar sem henni var ekki útbýtt fyrr en í dag, og mun það rétt vera. Ég sé ekki nema einn flm. á till., en þó ætla ég, að fleiri muni standa á bak við.