15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 923 í B-deild Alþingistíðinda. (472)

7. mál, lax- og silungsveiði

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Landbn. hefir nú haft málið til meðferðar í 2 mánuði, og er ekki ástæða til að tefja gang þess, þótt þessi brtt. komi fram, og allra sízt, þótt fram komi hótun um það að hafa málþóf, ef málið sé ekki tekið af dagskrá.