15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 926 í B-deild Alþingistíðinda. (483)

7. mál, lax- og silungsveiði

Magnús Guðmundsson:

Vegna ummæla hæstv. forseta aðan, vil ég skýra frá því, að Sjálfstæðisflokkurinn hefir akveðið að halda flokksfund í kvöld. Það var sagt hér í dag, að þingfundur mundi ekki verða haldinn eftir kl. 8 í kvöld, og því boðuðum við til flokksfundar á þessum tíma. Er mjög áríðandi mál, sem fyrir liggur, og verður því ekki hægt að fresta fundinum.