18.02.1932
Neðri deild: 4. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1024 í B-deild Alþingistíðinda. (575)
13. mál, vegur frá Lækjarbotnum austur í Ölfus
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Um frv. Þetta er hið sama að segja og hið næsta á undan (Vatnasvæði Þverár og Markarfljóts). Það var upphaflega samið af vegamálastjóra, og nú hafa verið gerðar á því smábreyt. í samráði við hann. Ég vil mjög eindregið óska þess, að bæði þessi mál megi fá afgreiðslu frá þessu þingi.
Að umr. lokinni óska ég frv. vísað til 2. umr. og samgmn.