05.04.1932
Neðri deild: 43. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í B-deild Alþingistíðinda. (590)

13. mál, vegur frá Lækjarbotnum austur í Ölfus

1) Ég fæ ekki betur séð en það skipti engu máli, hvort d. samþykkir frv. Þetta eða ekki. Það er borið fram á þeim tíma, sem fé til vegagerða er skorið niður í fjárl., og eingöngu í því skyni, að slá ryki í augu fólks. Ég vil engan þátt eiga í þeim skrípaleik og greiði því ekki atkv.

Á 45. fundi í Nd., 7. apríl, var frv. tekið til 3. umr. (A. 322, 327).