17.02.1932
Efri deild: 3. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1050 í B-deild Alþingistíðinda. (632)

9. mál, brúargerðir

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Þetta frv. var lagt fyrir þessa hv. deild í fyrra og afgr. hér þá, en dagaði upp í Nd. Vegamálastjóri hefir haft það til yfirsjónar á ný og gert við það nokkrar aths., og á þeim grundvelli er það borið fram nú. Ég hygg, að frv. Þetta hafi legið fyrir hv. samgmn. í fyrra, og geri því að till. minni, að því, að umr. lokinni, verði vísað til hennar á ný.