19.04.1932
Neðri deild: 55. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í B-deild Alþingistíðinda. (660)

9. mál, brúargerðir

Jónas Þórbergsson:

Ég mun taka þá leiðbeiningu hv. frsm. til greina að taka brtt. mína aftur til 3. umr. og bera þær þá fram við IIl. kafla. Brtt. voru miðaðar við, að þessi vegur yrði tekinn í þjóðvegatölu, enda veit ég, að svo verður gert strax og vegalögin verða samþ.