22.03.1932
Neðri deild: 35. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (768)

11. mál, skiptameðferð á búi Síldareinkasölu Íslands

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég tel óþarft að vekja umr. um þetta mál nú. Ég get vísað til rökstuðnings þess, er frv. fylgir, umr. þeirra, er orðið hafa um málið, og meðferðar hv. Ed. á því. Ég vil aðeins leggja til, að frv. verði vísað til sjútvn.