29.03.1932
Efri deild: 37. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (846)
17. mál, bygging fyrir Háskóla Íslands
Frsm. minni hl. (Páll Hermannsson):
Hv. frsm. meiri hl. tók réttilega fram, að frv. þetta hefði legið fyrir þessari hv. d. á tveim undanförnum þingum. Á þeim báðum var frv. samþ. hér í hv. d., en í Nd. hefir ekki unnizt tími til að afgreiða það. Ég hefi ekki getað komið auga á, að það liggi nú fyrir neinar ástæður, sem því gætu valdið, að ekki megi samþ. frv. nú eins og áður. En á hitt má að sjálfsögðu benda, að ekki er sama útlit fyrir, að fljótlega verði hafizt handa til framkvæmda eins og kann að hafa verið á þinginu 1930, því nú er mönnum orðið ljósara, að þröngt muni verða fyrir dyrum hjá ríkissjóði á næstu árum og lítið um fjárframlög til kostnaðarsamra stórfyrirtækja. Þrátt fyrir það hefi ég ekki getað fallizt á að vísa frv. frá með rökst. dagskrá. Mér finnst, að sömu ástæður séu til að samþ. það nú eins og verið hafa. Mér skilst, að með frv. eigi að tryggja það tvennt, að nauðsynlegur undirbúningur fari fram að byggingu háskólans, og að hafizt verði handa á sínum tíma. Þetta sama finnst mér vaka fyrir hv. meðnm. mínum. Í þeirri rökst. dagskrá, sem þeir flytja hér, er gert ráð fyrir, að undirbúningur að háskólabyggingu fari fram. Samkv. því hlýtur hv. meiri hl. n. að ætlast til, að ráðizt verði í að byggja yfir Háskóla Íslands áður en langt um liður, því annars væri undirbúningurinn þýðingarlaus.
Ég fæ því ekki séð annað en að það sé alveg jafnréttmætt nú eins og áður að samþ. þetta frv. Hinsvegar hefi ég, með hliðsjón af núverandi fjárhagsörðugleikum, leyft mér að bera fram brtt. í þá átt að rýmka um tímatakmörk frv. Ég geri ekki ráð fyrir, að hægt verði að byrja á byggingunni árið 1934; aftur á móti finnst mér engin fjárstæða að gera ráð fyrir, að byrjað verði árið 1936. Þó að í brtt. sé gert ráð fyrir, að verkinu verði seinna lokið heldur en í frv. er ákveðið, held ég, að ekki þurfi beinlínis að óttast það, því ef fé og vilji yrði fyrir hendi til þess að ljúka verkinu fyrr, yrði það eflaust gert.
Ég legg það því til, að mínu leyti, að frv. verði samþ. með brtt. á þskj. 244.