09.04.1932
Neðri deild: 47. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 337 í B-deild Alþingistíðinda. (89)

1. mál, fjárlög 1933

Forseti (JörB):

Þá hafa ekki fleiri kvatt sér hljóðs, og er umr. lokið.

Það hafa komið fram óskir um það, að halda atkvgr. um frv. og brtt. áfram í einni lotu án fundarhlés. Vænti ég því, að hv. dm. geri sitt til þess, að atkvgr. megi ganga sem greiðast, sérstaklega með því að greiða svo rösklega atkv., að ekki þurfi að hafa nafnaköll nema sem allra sjaldnast.