07.05.1932
Neðri deild: 69. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1319 í B-deild Alþingistíðinda. (960)

22. mál, útvarp og birting veðurfregna

Jón Auðunn Jónsson: Ég held, að það taki því ekki að vera að hrekja málið milli deilda. Var ekki mikill atkv.munur um það hér, þar sem það var samþ., með 13:11 atkv. Aftur á móti hafði frv. mikið fylgi í Ed. Legg ég til, að látið verði við það sitja, sem Ed. hefir gert í málinu.