07.05.1932
Neðri deild: 69. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1319 í B-deild Alþingistíðinda. (962)
22. mál, útvarp og birting veðurfregna
Jón Auðunn Jónsson:
ég verð að segja það, að mér þykir það miður farið, að hv. 1. þm. S.-M. skuli leggjast svo fast á móti þessu máli. Er það víða svo, þar sem fá skip eru í verstöð, að hafa verður sérstakan mann til þess að taka á móti veðurfregnum, því að sjómenn hafa ekki tíma til þess sjálfir. Eru veðurfregnir sendar út um kl. 1–2, þegar sjómenn sofa. Er það svo lítið, sem hér er farið fram á, að ég er hissa á því, að nokkar skuli geta talið það eftir.