02.05.1933
Efri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2874 í B-deild Alþingistíðinda. (111)

Afgreiðsla þingmála

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég get ekki að svo stöddu frætt hv. 2. landsk. um afdrif kjördæmamálsins. En ég mun róa öllum árum að afgreiðslu þess, og líklega tekur það ekki langan tíma, að komist verði að niðurstöðu. En annars get ég ekki látið hjá líða að benda hv. þm. á það, að hann á sjálfur sinn þátt í sínum kæruatriðum, því að hann hefir ekki viljað taka þátt í nefndarstörfum, þó að hann hafi átt kost á því.