02.05.1933
Efri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2875 í B-deild Alþingistíðinda. (113)

Afgreiðsla þingmála

0113Jón Þorláksson:

Mér finnst það ástæðulaust af hæstv. forsrh. að senda stjskrn. hnútur, því að hún hefir alveg gert sína skyldu í þeim efnum. Hún hefir tekið málið fyrir, og samkomulag hefir fengizt um að láta málið bíða þangað til útséð er um, hvernig stjskrfrv. því, sem lagt var fyrir hv. Nd., reiðir af. Mér finnst það illa gert að stimpla n. fyrir slælega afgreiðslu málsins, er hæstv. ráðh. var kunnugt um þessa fyrirætlun.