21.02.1933
Efri deild: 6. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1065 í B-deild Alþingistíðinda. (1135)

14. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er um að veita ríkisborgararétt 3 mönnum, sem þess hafa óskað og sent skilríki, er hafa þótt fullnægjandi. Síðan frv. var samið hefir mér borizt beiðni frá 4. manninum, norskum, og mun ég afhenda þá beiðni með fskj. þeirri n., sem væntanlega fær þetta mál til meðferðar.

Ég legg til, að málinu verði vísað til hv. allshn. að lokinni þessari umr.