17.02.1933
Efri deild: 3. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1074 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)

6. mál, verðtollur

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Ég vil lýsa því yfir f. h. stj., að í næstu viku verður lagt fram frv. til breyt. á stjórnskipunarlögunum. Um hitt get ég ekkert sagt, hvort þm. eða þingflokkar verða ánægðir með þær till. Ég lýsti því yfir í lok síðasta þings, að slíkar till. yrðu gerðar af stj. Ég hefi allan huga á því að vinna að farsælli lausn þessa máls, en hvort eða hvenær það tekst, veit ég auðvitað ekki. Ég sagði í fyrra, að ég sæi ekki, hvert samband væri á milli kjördæmaskipunarmálsins og þessara tolllaga, og um það hefi ég sama hugarfar enn, enda hygg ég, að nú sé svo margt aðkallandi, að ekki sé vert að tengja um of saman óskyld mál.