27.05.1933
Efri deild: 82. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1116 í B-deild Alþingistíðinda. (1231)

12. mál, skrifstofufé sýslumanna og bæjarfógeta

Magnús Torfason:

Hv. frsm. er ekki við, en ég tel mér skylt að láta þess getið sem form. allshn., að n. vill mæla með brtt. á þskj. 803. Hún gengur í þá átt, að ekki verði breytt hæð skrifstofufjárins, nema gengisbreytingar hafi veruleg áhrif á þurftarlaun. Brtt. er til bóta, og vænti ég því, að hv. deild samþ. frv. með þessari breytingu.