31.05.1933
Neðri deild: 88. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1260 í B-deild Alþingistíðinda. (1311)
66. mál, lögreglumenn
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Hv. 2. þm. Reykv. sagði, að blaðamannaherbergið væri fullt af lögreglumönnum. Þetta er víst ekki rétt. Ég sé þá a. m. k. ekki. Og hver og einn getur gengið úr skugga um, að þetta er rétt hjá mér með því að líta þangað. Annars hefi ég ekkert út á það að setja, þótt lögreglan sé hér. Henni er fyrst og fremst heimilt að vera hér sem öllum öðrum. Og auk þess er það skylda hennar að vera þar sem vandræða geti verið að vænta, og afstýra þeim.