27.05.1933
Neðri deild: 84. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2883 í B-deild Alþingistíðinda. (138)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JörB):

Út af ummælum hv. 1. þm. S.-M. get ég heitið honum því að taka þessi mál svo fljótt á dagskrá sem unnt er. En að því er þáltill. snertir, sem hann lýsti eftir, vil ég geta þess, að ég hefi alltaf beðið eftir áliti annars nefndarhlutans, en þar sem það virðist ekki eiga að koma, mun ég ekki bíða þess lengur, en taka málið fljótlega fyrir, ég býst við á þriðjudag.