25.04.1933
Neðri deild: 57. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (1415)
165. mál, slysatryggingalög
Halldór Stefánsson:
Mér þykir gott að heyra þá skýringu hv. flm. á vatill., að hann meini ekki, að önnur slys en þau, sem annars eru bótaskyld, komi til greina. Vitanlega er það sanngirni nær, því að hitt mundi valda því, að þau yrðu mörg tilfellin, sem yrðu skoðuð sem bótaskyld slys á hendur slysatryggingunni, sem mundi leiða af sér mikla fyrirhöfn og málafar. Ég mæli ekki sérstaklega á móti því, að þetta verði gert, ef þingið treystir sér til, því að vitanlega eru þær bætur, sem nú eru ákveðnar, ekki fullar bætur.
En jafnframt vil ég ítreka það, sem ég hefi áður sagt, að samþykkt þessa ákvæðis mun orsaka talsvert mikla aukningu útgjalda fyrir slysatrygginguna, og yrði þá ekki komizt hjá því að hækka iðgjöldin að verulegum mun.