03.06.1933
Efri deild: 91. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1292 í B-deild Alþingistíðinda. (1538)

7. mál, gengisviðauka og tekju- og eignarskattsauka

Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:

Þetta frv. hefir legið hér áður fyrir þessari hv. þd. í annari mynd en það nú er, eins og allir hv. þdm. kannast við. Frv. eins og það nú er orðið á rót sína að rekja til þeirrar afgreiðslu, sem fór fram hér í d. í dag á öðru máli, um hækkun á tekju- og eignarskattinum, þar sem það var fellt frá 3. umr. Ég vænti, að þetta frv. fái fljóta og góða afgreiðslu, svo að þingslit geti orðið í dag.