17.03.1933
Neðri deild: 29. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1301 í B-deild Alþingistíðinda. (1569)

60. mál, rekstrarlán fyrir Útvegsbanka Íslands h/f

Hannes Jónsson:

Ég bar fram fyrirspurn við fyrri umr. þessa máls, sem ekki hefir verið svarað. Ég kann því illa, að málið fari svo í gegnum allar umr. hér í hv. d., að ég fái ekki svar við þeirri spurningu, að hve miklu leyti ábyrgðarheimildin hefði verið notuð á síðastl. ári og hvernig bankinn hefði getað staðið í skilum með greiðslu á því láni, sem kynni að hafa verið tekið. Vænti ég þess, að það komi fram, áður en málið fer alveg út úr d.