17.03.1933
Neðri deild: 29. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1302 í B-deild Alþingistíðinda. (1571)

60. mál, rekstrarlán fyrir Útvegsbanka Íslands h/f

Frsm. (Halldór Stefánsson):

Að því leyti, sem fyrirspurn hv. þm. V.-Húnv. um fjárhæðina hefir ekki verið svarað, þá skal ég benda honum á, að upplýsingar um það eru í nál. Þar segir svo: „Heimild þessi var notuð á næstl. ári, þó ekki nema að hálfu leyti . . . “, þ. e. a. s., að það voru tekin 50000 sterlingspund að láni.